|
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 5 janúar
|
05.01.2009 10:36:45 / Ása
Jæja Ég hef ákveðið að blogga en í stað þess að opna eina síðuna í viðbót sem ég kann síðan ekkert á eða er neydd til að borga pening til að skrifa á þá mun ég hripa niður nokkur orð á þessa blessuðu gömlu góðu síðu
Það er semsagt komið árið 2009 og ég er orðin tvítug...tvítug og fimm daga meirasegja Ragnar er 24 í dag sem gerir hann að gömlum manni með skyr í yfirvaraskegginu
Jólin eru búin að vera da bomb Sofa, vinna, borða, sofa, opna pakka, borða, opna pakka, sofa, vinna... Djamma Ragnar fór frekar snemma yfir þannig að ég þurfti að fara með kortin ein, ég söng jólahjól á meðan, það var jólalegt Maturinn var óhuggulega góður, mamma og pabbi eru kokkar af bestu gerð. Ég fékk ótal jólagjafir, Rafael fékk líka ótal jólagjafir en samt er hann bara hundur Skellti mér síðan á haugafyllerí milli jóla og nýárs sem endaði með slefi og lúr á gólfinu Áramótin voru hrikalega rafmagnslaus, kerti og kampavín. Huggulegt Ragnar var hjá mér svo hann fékk að kynnast þeirri klikkun sem er áramót hjá niðjum Ásu Sigríðar og Sæmundar Árna. Honum leist vel á það og kúrði með Kristján Tjörva í myrkrinu þegar enginn sá til. Skaupið var skemmtilegt, ég var full, sem betur fer búin að fara í sturtu áður en heitavatnið fór... Kreppan hafði ekki áhrif á flugeldakaup í stórfjölskyldunni þetta árið og skutum við upp mörgum peningum og mikilli vinnu kínveskra barna Síðan blikkaði skiltið úr 8 í 9 og allir kysstust og sungu áramótalagið. Ég ákvað að fara í göngutúr á villtu hliðinni og hélt uppi blysi í 5 mínútur þar til að það slökkti á sér Ég fékk ekki að skjóta upp hvorugri tertunni sem við Ragnar keyptum, ég var ekkert sár Við vorum með tvo unga kana í heimsókn um áramótin, þeir borðuðu svið og hákarl og sögðu oj Síðan var haldið heim í Freyjugötuna ásamt Katrínu, Sæma, Kristjáni, Ástu og Stebba og skáluðum við í ljúffengu freyðivíni Síðan var haldið á barinn, þess má geta, fyrsta áramótaballið mitt á Mælifelli Nýársdagur fór í rómantíska gönguferð okkar Ragnars í frostinu, góð byrjun á nýju ári. Nýársveisla heima hjá ömmu og pakkar handa mér Síðan var brunað suður þann annann janúar í heimsókn til tengdafjölskyldunnar, með tilheyrandi stoppi í nýja Staðaskála og meðfylgjandi sárum vonbrigðum yfir vegabreytingum og óhuggulegheitum. Næst ætla ég að loka augunum Semsagt góð jól og góð áramót (Fyrir utan Staðarskála, sem eyðilagði allt sem hafði unnist upp um jólin)
En við erum búin að búa mánuð núna á Freyjugötunni og það hefur verið einn stórkostlegur mánuður. Þrátt fyrir fílahjörð og teknóveislu á efrihæðinni Ég er orðin húsmóðursleg og ætla að setja í nýju þvottavélina okkar á eftir. Síðan ætla ég að baka. Því ég er húsmóðir
Núna er ég komin aftur í Sundlaugina... Sælan búin og við tekur skóli og vinna, skóli og vinna, skóli og vinna... Yndislegt Nú sló ég tólinu í vegginn
Blessogtakkfyrirmig
»
07.05.2008 18:02:55 / Ása
Jæja Þar sem ég er í skýjunum núna yfir því að mamma mín leyni á sér sem tölvunörd og hafi getað lagað netið í tölvunni minni en jafnframt reið yfir að ég hafi verið að verða búin að að setja allar myndirnar frá Glasgow á netið en þá hafi síðan dáið, þá hef ég ákveðið að blogga Eða reyna það Ég er að horfa á Macbeth...í Macbeth leyfast bara hlutir eins og að Hurlyburly sé alvöru orð og fólk tali í gátum og að fimmtíu tannlausar konur komi saman naktar að kukla... Hvað gerir maður ekki fyrir Björn Magnússon  Skólinn næstum því búinn...4 próf eftir og þar af 2 af þeim enskupróf sem gera lífið mitt auðvelt, nema fyrir utan Macbeth og hans soralíferni auðvitað Seinasta prófið mitt er reyndar ekki fyrr en 16. maí, franska 403...það verður ekki næs, ekki fyrr en klukkan hálffjögur þegar ég er búin með það! Ég ætla að nota orð sem standa utan á sjampóflöskum, eins og chevaux eða sem standa utan á andlitskremum eins og visage og athuga hvort ég nái ekki Sumarið verður helmingsnæs Ragnar ætlar að koma að eiga heima hjá mér og kúra hjá mömmu og pabba í sumar og það verður geggjað. En hins vegar ætlar Katrín að flytja í Sódómaborgina og Sunna er flutt til Bjórlandsins ásamt Bylgju í sumar sem er ekki geggjað En það reddast...ég fer oft til Reykjavíkur og svo ætlum við Ragnó líka til DK í sumar að heimsækja Sunnu og Bylgju á meðferðarheimili í Danmörku, og líka fara í tívolí og BonBon land og Legoland... Páll Óskar er einn ófrumlegur gaur Ég er eins og kötturinn framan á DV sem hræddi mig með auganu sínu... Ég fékk það sem ég vildi með að senda fólki sýkta augað ef það var með uppsteyt við mig Síðan þurfti ég að nota gleraugun mín, þá var ekkert skemmtilegt við lífið lengur Alltaf ef ég fer út og kem svo aftur inn þá verða gleraugun öll útí þoku og fólk hlær að mér en ég get ekki séð hver það er því þokan er fyrir og þá er ég bjargarlaus og sár En um helgina ætla ég að setja í mig linsur aftur Þess má geta að í þessu bloggi eru komin 370 orð og 1936 stafir Djöfull verður næs þegar sumarið kemur Þá ætla ég að vinna í Sumar T.Í.M...Tíhí feis á alla sem héldu að ég myndi enda í Skaffó! Síðan ætla ég líka að veiða í sumar! Og tjútta! Ég elska sumarið Dimmiteringin var um daginn Djöfull var það OSOM, byrjuðum um miðnætti í Melsgili, svona fimmtíu manna hópur, allir búnir að dressa sig upp sem trúðar eða morðingjar eða morðingjatrúðar eða gaurar með eitthvað svart framan í sér...vorum svo þar til fimm, það var reyndar orðið pínu langdregið, en svona um fimm þá kom rúta og náði í okkur og fór með okkur inní bæ þar sem Jón Gunnar beið okkar á traktor með risakerru og keppnisólöglega og þar tylltum við okkur nú öll saman og sungum og höfðum hátt og fórum og vöktum kennarana, auðvitað var Bjössi Magg kominn á fætur og til í okkur þegar við mættum Það var langskemmtilegasti hlutinn, fórum svo á vistina, sem var reyndar líka alveg geðveikt, hurðin Binna og Ella brotin upp og auðvitað fengu þeir sem vildu að kúra hjá Ella...það voru samt alltof margir vitrir að læsa herbergjunum sínum Síðan gerðist eitthvað meira...fórum í skólann og svona, kennararnir voru félagsskítar og leiðinlegir og vildu ekki koma í hlaupa í skarðið með okkur Eeen þetta var best Það var líka best að Friggi datt af kerrunni í náttsloppnum sínum og þá ákvað Valdi að sparka í hann til að "bjarga" honum frá hjólunum...tíhí   
»
25.02.2008 00:36:02 / Ása
Hæ ég heiti Ása og ég er personal shopper fyrir stjörnurnar...ójá...í skaffó, í skaffó gerist ýmislegt...þar afgreiddi ég Baltasar Kormák og hann og Lína voru alveg græænar af öfund! En ég leyfði þeim að baða sig í ljómanum með mér...ég er enginn bastarður Eða reyndar er ég fædd utan hjónabands, en það þykir engin skömm nú á dögum
Een ég var að koma frá Glasgow...það var geðveikt...sóðalegasta ferð alheimsins Ég fór á strippstað, það var einn sleezy staður...hliðargatan sem ég týndist í með ruslagámunum og ógeðinu var fallegri...þær ætluðu að krækja í mig og hafa af mér pening, ég hélt nú ekki, þær máttu hafa pening af fylgdarliði mínu... En nú ætla ég aldrei að drekka vodka í redbull aftur...nema þegar ég sakna ferðarinnar og vill fá smá smjörbragð af glasgow...ég hló síðan alla nóttina, ég held það hafi verið redbullinu að kenna, ég höndla ekki orkudrykki... Ég verslaði líka subbó mikið í Glasgow...það var allt svo ódýrt þarna, en enn og aftur féll ég í þá gildru að þora ekki að segja nei þegar fólk er óhugnalega vingjarnlegt við mig og eyddi 1500 kalli í það ljótasta glingur sem ég hef séð á ævi minni...en allt hitt var geggjað Svo hitti ég nunnu sem sagði að ég myndi öðlast ævarandi hamingju því ég brosti svo til hennar þegar hún var að tala við mig um eitthvað sem ég skildi ekki því skoskur hreimur er tungumál grameðlna...allavega þá var ég svo ánægð yfir ævarandi hamingjunni minni að ég gaf henni allt klinkið mitt og hún gaf mér bók sem ég ætla aldrei að lesa...síðan ákváðum við að vera vinir að eilífu og skiptast á bréfum. Í alvöru, við vorum öll eins og fávitar þegar við þurftum að eiga einhver samskipti við skotana, ekki hægt að panta sér kjúkling án þess að vera asnalegur, ekki hægt að biðja um herbergisþjónustu án þess að fá kaffibolla sem maður pantaði ekki... Ég svaf samt á ógeðslegasta svefnsófa í heiminum og nú eru beinin mín með för eftir gormana sem munu aldrei fara Þetta var geðveik ferð
Þessi helgi var líka osom...tók því rólega og keyrði á föstudagskvöldið, var að vinna á laugardaginn þar sem, jú, ég afgreiddi baltasar kormák...úff...og svo eftir vinnu fórum við Ragnar í Móskóga sem var best, það var reyndar ekkert skemmtilegt veður og það er alltaf hálf skuggalegt að vera þarna þegar það var komið myrkur en þar sem ég hef vöðva á við asnalegu gaurana í júróvisjon laginu sem var að reyna að komast áfram þá hafði ég ekkert að óttast...við elduðum, spiluðum, horfðum á tímon og púmba og lékum okkur í nintendo...ég elska Móskóga
En Árshátíðin er á föstudaginn, djöfull hlakka ég til...samt ekki ef ég þarf að halda ræðu, þá er ég að hugsa um að þykjast vera veik, eða bara dáin... Það er samt alltaf gaman á árshátíðinni, nema þegar auddi blöndal kallaði okkur drollurnar druslur á seinustu árshátíð... Hann er drusla Opnu dagarnir eru á undan og ég er sár að geta ekki tekið mikið þátt í þeim...en ég fer allavega í ljósmyndamaraþonið og á Tekken mótið...sé til með hitt...var reyndar búin að lofa Helgu að mæta í danskann dans, en ég held ég beili
ÉG ÆTLA AÐ FARA AÐ SOFA GÓÐA NÓTT!
(hendi líka inn myndum af Glasgow þegar talvan mín hættir að vera stór retard)
»
06.02.2008 18:54:11 / Ása
Ég er að fara til Glasgow eftir viku...þar ætla ég að fá mér hóru...nei djók Eða hvað? Allavega þá er ég að fara til Glasgow með Ensku 703...ég hlakka til Einu sinni fór ég samt til Skotlands og þar var ekkert nema ljótt fólk, sæskrímsli og matur búinn til úr kindaheilum og eitthvað þaðan af verra Þá var ég reyndar í einhverju inbreed sveitahéraði og eitthvað vesen þar sem reynt var að selja mér barn fyrir hænu Glasgow er örugglega siðmenntaðri Í dag var ég Quasimodo, það er erfiðara en fólk heldur, ekki skrýtið að hann hafi verið styggur það er ógeðisóþægilegt að labba svona og svo er óþægilegt að vera alltaf í hlekkjum Það er semsagt öskudagur og margir mættu í búningum í skólann, svo var búningakeppni og síðan sungum við fyrir Kela þannig að við fengum frí eftir hádegi... Skaffó kom mér á óvart og borgaði mér miklu meira en ég hélt ég fengi...ég var svo glöð að ég eyddi öllum peningum strax eins og einhver retard Nú er ég bara sár og reið Svo er líka verið að breyta Skaffó og ég er alltaf jafnringluð þegar ég kem þarna inn núna...núna hefur Hróbjartur meira pláss til að labba stressaður um og hringsnúast... Af hverju er verið að hvetja hann...? Ég hata augað mitt...ég er komin með sýkingu í það aftur og sama hvað Eva segir þá dugar ekki að hugsa jákvætt og senda skilaboð til alheimsins...alheimurinn sökkar og gefur mér ekki það sem ég vill... Og læknirinn litaði á mér augað og lokaði mig inní einhverju herbergi í korter og það eina sem ég skar uppúr því er dropar í augað sex sinnum á dag og endalausar spurningar um hvort ég sé þunn Alheimurinn og læknar sökka Í kvöld ætlum við drollurnar að fara út að borða útaf við rústuðum öllum hinum sem voru í búiningum á handboltamótinu Síðan ætlum við að taka upp myndband Ég má vera svarta stelpan Orðið Hurlyburly er alvöru orð og það er í MacBeth...það finnst mér fyndið Mér finnst líka Blackle fyndið og þrifaplanið sem var einu sinni á nemó 
Svona var ég
»
31.12.2007 15:52:21 / Ása
Ahh
Gleðileg Jól
Síðasti dagur ársins 2007...
Það er næs, samt ekki næs því að þá er ég skrefinu nær því að vera
gömul og ég held það sé ekkert skemmtilegt því það er svo mikið af
gömlu fólki sem kaupir bara rúgbrauð, mjólk og kökur með sultu í í
skaffó og mér finnst það ekkert gott
Aallavega...núna þá ligg ég uppí rúmi í
áramótaverkfalli, einu sinni á einhverjum jólum þá fórum við í
verkfall og mótmælagöngu með alvöru skilti hérna heima af því að
við vildum fá að opna pakkana fyrr og ég er að pæla í að gera það
núna af því að ég á tvo pakka frammi og ég get svo svarið að þeir
héldu fyrir mér vöku í nótt...ég þráááái að opna þá
Næstu þrír tímar verða erfiðir
Ég á afmæli á morgun
Þá verð ég 19 ára...það er bara ekki neitt skemmtilegt við að verða
19 ára
Eins gott ég fái mikið af pökkum...eitthvað verður að halda á mér
hlýju í tilhugsuninni um að ég eigi heilt ár framundan í að vera
ekki neitt...
Ég hata veðrið
Veðrið er fáviti
Ég hlakka til þegar áramótin
koma...ég hlakka til þegar skaupið kemur, ég hlakka til að geta
farið að sprengja upp, ég hlakka til að geta notað spreyið sem
spreyjar böndum án þess að vera asnaleg, ég hlakka til að mega nota
innibombuna sem ég keypti, ég hlakka til að fara á ball, ég hlakka
til að hitta Ragnar...Áramótin eru svo skemmtileg
En talandi um áramótin þá ætla
ég á ball á Blöndósi
Ég er ekki nógu andlega þroskuð til að fara á átján ára böll
ennþá...
Ég fer með rútunni ásamt rauðhærða frænda mínum og frænda
mínum sem er ekki rauðhærður og ég var að skoða listann yfir
fólk sem fer í rútunni
Ég er elst á þessum lista
Ég sökka
Ég sá son Bjarkar um daginn
Það var upplifun lífs míns
Fyrir utan þegar ég sá Jónsa í Smáralind
GLEÐILEGT ÁR!

Ég ætla samt að setja nokkrar
stolnar og ekki stolnar myndir frá 2007 

Ég og Sunna í lest á leiðinni á
Hróaskeldu

Ég og Teitur á strandbarnum

Drottningarnar tóku þátt í
söngvakeppninni

Team Kitty-Kat í dodgeball

Við héldum litlaskógar partý

Við fórum í bústaðarpartý þar sem Sunna varð Hypno-Toad

Við héldum frumsýningarpartý þar sem Ásþór
strippaði
Sandra hélt okkur skemmitlegt partí í Mávahlíðinni
þegar Incubus tónleikarnir voru
Við fórum í emópartí
Katrín og Fanney áttu afmæli og héldu
grímubúningapartý
»
07.12.2007 15:20:37 / Ása

Shark boy and Lava girl er lélegasta mynd í heiminum Síðan ákváðu Íslendingar að gera hana ennþá lélegri og hafa þýðinguna á þeim Há-Kalli og Hraun-Elfa...Vá...ég vona að allt það fólk sem kom nálægt henni sé atvinnulaust og réttdræpt núna...í alvöru, ég vona það, nema kannski George Lopez, þó ég verði að segja að ég er mjög sár útí hann En annars fara prófin að klárast svona sirka á miðvikudaginn...bara eitt próf eftir sem er Náttúrufræði og ég ætla að kúra hjá Nínu þar til hún neyðist að láta mig ná svo ég eyðileggi ekki hjónabandið hennar Svo þegar prófin eru búin þá tekur nú alvöru skemmtunin við...sem er auðvitað Skagfirðingabúð, lovlí En þar á ég nefnilega einn samstarfsmann sem er líka að byrja...við Katrín verðum aðalskaffóafgreiðslumennirnir þessi jólin og ég treysti á hana að sýna jólaskapið sem Eva sýndi í fyrra þegar ég er orðin sár og bitur útí íbúa Sauðárkróks eftir að hafa afgreitt þá of oft og farin að urra á fólk sem vill fá að máta skó Þessi jól ætla ég samt ekki að vera jafn ógeðisemó og ég var seinustu jól, það var reyndar óvart og ég tók ekki eftir því hvað ég var sjúklega emó fyrr en ég var komin í dressið og áttaði mig á að þar sem ég væri dökkhærð og í þeim fötum sem ég var í var líklegra að ég væri að fagna fæðingu antikristar frekar en nokkurs annars. Helgin verður bara heldur betur róleg...ég er hætt að trúa á áfengi svo það fer ekki inn fyrir mínar varir...ég trúi allvega ekki á það í kvöld Vinna í fyrramálið...klukkan tíu en ekki átta feis sjúkrahús...svo bara til Ragnars erftir vinnu Þetta verður fín helgi Talandi um helgi þá er Helgi Sæmundur að koma heim 12 dagar Og þá kemur mútta líka heim og allir sáttir Ég er að hugsa um að hætta við að gefa Rafaeli gjöf þessi jólin, seinustu jól átti hann tvo pakka undir trénu og eeinvhernveginn tókst honum að finna þá og lá undir trénu frá því að við settum pakkana undir tréið á Þorláksmessu og þangað til við opnuðum þá...stóri retard, besti hundur í heimi Þess má líka geta að retard á frönsku þýðir seinn, fróðleiksmoli Og talandi um frönsku þá fengum ég og Fanney koss á kinnina frá Erik Fissers á þriðjudaginn, besti dagur lífs míns
En það er auðvitað komið á hreint að Radiohead spilar á Roskilde 2008...sem er svo geðveikt geggjað, alveg bara gg Svo er ég að halda í vonina svo heitt og innilega með Smashing Pumpkins og jafnvel Mars Volta , og svo auðvitað að þeir hringi í mig og segji að ég sé best í heiminum og biðji mig um að spila eitt tvö lög, ég geri það örugglega ef þeir spurja sko Svo er nýr Mars Volta diskur að koma út í lok janúar  The Bedlam in Goliath mun hann heita og ég hlakka svo sannarlega til Þau lög sem ég hef heyrt af honum lofa svo sannarlega góðu allvega The Mars Volta - Goliath BLESS! p.s. Skaggastelpur, ég er víst meiri lesbía en Rosie í nágrönnum!!
»
23.11.2007 11:41:41 / Ása
Í dag er ég mjög bitur, ég er bitur útaf því að það er ekkert
munstur á litunum á skápunum í skólanum, ég er bitur útaf því að ég
vann ekki neitt í bingói á þirðjudaginn í heimska ljóta Árskóla, ég
er bitur útaf því að þar er kominn vetur, ég er bitur útaf
Sjúkrahúsinu, ég er bitur af því að ég finn ekki uppáhaldsskóna
mína og skórnir sem ég er í núna er ljótir á litin Föstudagar geta
verið bitrir dagar
Leikritið er að klárast núna á sunnudaginn...það er gott og
slæmt Þá getur maður farið snemma að sofa og þarf ekki að eyða þrem
klukkutímum í að hreinsa andlitið á sér eða þá að gjalda því dýrum
dómi ef maður gerir það ekki með að vera komin með svarta slikju
fyrir augun sem gerir mann eins og Balthazar í Charmed...svalt En
hins vegar á maður ekki eftir að vita hvað maður á að gera á
kvöldin og fara að eyða bensíni aftur...leikritið sparaði mér
bensínkostnað uppá milljón Nú get ég heldur ekki verið með
skærbleikann varalit án þess að fólk geri einhverja
athugasemd...það er það versta við þetta

Það er að koma 2008...ég er að verða þrítug Allavega
nítján...það eru að verða 8 ár síðan ég var 11 ára geðveikt stolt
að drekka sprite úr kampavínsglasi sem stóð á Millenium og 2000 Þá
var ég með kórónu og var eins og krossþroskaheft indversk prinsessa
með varalit Ég er svalari í dag...vona ég
Ég fékk nýjann Ipod...til að slá á biturleikann varðandi það að
hinn væri í Danmörku...núna sit ég í mjúkasta sófa í heiminum og
hlusta á Smashing Pumpkins sem ég get svo svarið það verða betri og
betri Þá kemur upp hugsunin um næstu Hróaskeldu...ég hlakka svo til
þegar hljómsveitir fara að koma inná síðuna...það er svo mikill
spenningur í kringum það Ég hlakka til næsta júlí
Oog eftir minna en mánuð kemur minn kæri bróðir heim...það
verður best! Loksins verð ég ekki einkabarn lengur...þá fæ ég
reyndar ekki alla athyglina en ég kann alveg að deila með mér
Svo er drollupartý 14-16 desember...ég kemst
reyndar ekki en planið er ótrúlega flott...girnó matur og bolla og
pakkaskipti á föstudeginum Ég ætla að vera í Reykjavík
mellupoppuð...nei djók ekki mellupoppuð en smá kókuð...nei djók
ekki kókuð heldur bara á ímyndunarfylleríi Því ég er tínsa

Tíhí orðasprell!!
Smashing Pumpkins - Mayonaise
Fool enough to almost be it
Cool enough to not quite see it
Doomed
Pick your pockets full of sorrow
And run away with me tomorrow
June
»
07.11.2007 10:29:34 / Ása


Einu sinni var gaur sem fékk sverð uppí
nefið og þá eyðilagðist drekinn í heilanum á honum og eftir
það gat hann ekki lært neitt nýtt
Kv. Sálfræði
Það er kominn 7 nóvember!
Eftir mánuð verður kominn 7 desember...og eftir 2 mánuði verður
kominn 7 janúar og þá verð ég orðin biðstövðargömul, fæ engin
réttindi og öllum gæti ekki verið meira sama um afmælið mitt.
Mér finnst að Alþingi ætti að koma með eitthvað frumvarp sem tengir
einhver réttindi við 19 ára, bara í ár svo má það breytast...ég er
eigingjörn
Veðrið er á breytingarskeiðinu
þessa dagana og annann hvern dag er kyngjandi snjókoma og hina
dagana er rok og rigning, það er superlame því maður veit aldrei
við hverju á að búast á morgnana og verður vonsvikinn því maður
nennti ekki að taka úlpuna sína með innúr bílnum og þarf að vaða
snjó uppað öxlum útí frosinn bíl og þar bíður manns stórfótur og
þar að auki þarf maður að fara til Eriks sem er alveg ú eru ekki
allir glaðir í dag
GOD
Við erum ekki glöð
Menningarkvöldið var um daginn og
það var osom...osom to the max! Við gerðum Turtles og þeir voru
langflottastir og langsvalastir og langvinsælastir og geðveikastir,
allir hinir voru töff líka
Turtles vann reyndar ekki neitt og ég fór í fýlu

Hver stenst þessa töfra?
Addi Pjé, Valdi, Nikki og Bragi eða
Leonardo, Michalangelo, Donatello og Rafael
Svo áttum við Ásþór líka í draginu
en hann fékk samt verðlaunin fyrir að vera frumlegastur. Hann var
ekkert frumlegur, bara ógeðslegur og ég mun aldrei líta á hann sömu
augum aftur

Nasty Bitch
Við dönsuðum líka Förum í Fjörið dansinn og vorum
asnaleg
Núna sit ég við hringborðið með hinum riddurunum,
öllum nema Adami en hann er að skrópa
Það er semsagt nemófundur og ég er geðveikt ábyrg með ferðatölvu
enn og aftur að pikka inn ábyrgðarfull orð og skoða myndir af
allskyns myndritum af töflum
Og þegar ég er búin að vera ábyrg þá fer ég í stúdíóið með honum
Sindra Njál og við tökum upp sjóðheita hittarann okkar, Ég
mæni...Sorin er að hætta að reykja og Gulli var á undan okkur svo
ég býst við því að verða étin á Rúmenskann hátt
Ég fékk gjöf og það var svalasta gjöf sem ég hef
fengið
Ég fékk egg sem maður setur í vatn og eftir smá tíma þá brotnar
eggið og út klekst alvöru risaeðluungi sem stækkar og dafnar í
vatni!
Þetta er bróðirinn handa ísbjörninum sem að stækkaði í búrinu sínu
í vatni, ég braut búrið til að ná ísbjörninum út því hann var
búinn að stækka fyllilega, svo týndi ég honum því hann er í sama
lit og snjórinn og það vildi svo til að þetta var sá dagur sem
veðrið ákvað að vera kynkalt en nú er ég búin að bæta fyrir barnið
sem ég týndi
BLESS!

»
17.10.2007 18:35:57 / Ása
Tíhí ég ætla að blogga núna...flipp...HEHE Ég er svo ekki búin að standa við loforð mitt um að vera duglegur bloggari...en ég ætla samt að blogga núna svo ég verði ekki barin af einhverjum reiðum blogglesurum Dansæfingu fyrir leikritið á eftir...það verður skrautlegt...ég er komin í dansfötin mín sem ég hef geymt síðan ég var dansari í Fame á gullárum mínum og til í tjúttið...verst bara að þegar ég tek þátt í svona dansuppfærslum lætur Broadway mig ekki í friði í marga mánuði ...en ég sá við þeim því ég er búin að skipta um símanúmer FEEEIS! Haldiði að kjellan hafi ekki bara náð náttúrufræðinni! Þetta afsannaði allt það sem inngöngunefndin í læknisfræðideild háskólans sagði við mig...og enn og aftur vinn ég!...og ég vinn líka í sálfræði og frönsku og ensku En allir hinir kennararnir hafa ákveðið að vera superlame og eru ekkert að flýta sér að setja einkunnirnar inn svo nú bíð ég bara leið fyrir framan tölvuna alla tíma sólarhringsins og sendi örvæntingarfull bréf til Guðbjargar kennara Menningarkvöldið verður svo 31.október...ég og fanney ætlum að skella okkur í dragið og gera Ásþór að konunni sem hann fæddist til að vera! Svo verður bodypaint og tónlistaratriði og fleira. Og í martröðum mínum koma skiptinemarnir síðan í fyrra og endurflytja leikritið sitt en svo vakna ég og átta mig á að heimurinn er jú dásamlegur Ég nenni nú eiginlega ekki að blogga meira...aðallega vegna þess að ég er að horfa á dr. Phil og jafn mikið og ég hata manninn talar mössarinn hans djúpt til hjarta manns og hvetur mann til að horfa á og læra... 
Eftirfarandi bætt við af stjórn Blog.Central klukkan 23.27: Vinsamlegast skrifið skilaboð hérna fyrir neðan annars verður lokað fyrir netaðganginn í tölvunum ykkar Kveðja, Blog.Central
»
02.10.2007 11:02:44 / Ása
Halló...
Ég hef
ákveðið að byrja að blogga aftur og í þetta skipti mun ég haldast
við þetta!
Ég ætla líka að vera hræsnari og skamma alla sem að eru latir að
blogga!
Miðannarprófin eru að byrja
og þess vegna pottþétt nenni ég að fara að blogga aftur...þetta er
sjúkdómur, ég veit það...ég er ekki ábyrg fyrir neinu sem ég
geri!
En laufskálaréttarballið
var seinustu helgi og það var alveg fínt...hellingur af slagsmálum,
drykkju, hórdómi, dansi, ástarjátningum og ég veit ekki hvað og
hvað...auðvitað hegðaði ég mér óaðfinnanlega og tók ekki þátt í
neinu ofantöldu
Byrjuðum í partíi heima hjá Röggu og til að byrja með þekkti maður
allavega tvo þriðju af fólkinu sem var það en þegar fór að líða á
þá var eins og öll Akureyri hafi ákveðið að fjölmenna heim til
hennar bara svo að við myndum örugglega ekki þekkja neinn og við
Katrín Ásdís Sunna og Ragnar Stefán stungum af á barinn og tókum
þar pool, blönduðum geði við pólverja og fengum okkur skot...það
var gaman
Leikritið er
byrjað í skólanum í þetta skiptið varð Grease fyrir valinu...það er
gaman...ég er Jan, hún er heimsk, gerir ekkert annað en að éta og
dansar asnalega...ægir sagði að þetta hlutverk hentaði mér
vel...takk
Ég og Sindri fáum líka að syngja ástarsöng saman...eða Sindri
syngur ástarsöng og ég góla eitthvað fyrir aftan á meðan hann er að
mæna á eftir mér, það er töff
Ég fór suður
um daginn...þar verslaði ég mikið, gisti á hóteli sem var að
látast, ældi á karlaklósettið á rónabar, missti heila pítsu og fór
á ground zero...Reykjavíkurferðir eru spennandi
Reyndar þá fórum við í bíó á Astrópíu, hún er geggjuð...djöfull
larpaði ég eftir hana og eitthvað...síðan fórum við í keilu og ég
er ekki jafn góð í keilu og ég hélt...ég er hinsvegar sóðalega góð
í byssuleiknum sem er í keilhöllinni...þar liggur framtíð
mín
Vá mér hefur
aldrei áður fundist svona fáránlega erfitt að blogga...ég þarf að
eyða svona tíu mínútum í hvert orð ásamt mikilli áreynslu og nú er
ég geðveikt rauð í framan...það er líka útaf því að það er heitt
hérna inni, áðan var mér kalt...oog núna ekki
lengur...vá
Ég er líka geðveikt góð í
póker, á loftbelgspeysu, hundurinn minn er bældur og talvan mín er
komin með vírus... Svo á ég rauðhærðann frænda sem hótaði að segja
mér upp ef ég myndi ekki blogga um sig í næsta bloggi mínu...mig
langar að setja mynd af honum hingað inn því hann er svo asnalegur,
en ég á enga mynd af honum. Hann heitir Sæmundur Árni og býr í
Belgíu...hann hlustar á teknó og eins og áður kom fram er hann
rauðhærður...hann er líka góður að syngja og hérna er mæspeisið
hans; http://www.myspace.com/macbethsband
Þetta var Sæmundar Árna hornið í dag...í næsta þætti gef ég
símanúmerið hans
En jó ég er hætt á
shellinu!!! Það kom nýr yfirmaður og ég höndla ekki breytingar...ég
var sár útí hann og hætti, staðurinn er líka going downhill...núna
er ég á fullu að skeina...það er hipogkúl að skeina...það er fínt
að vinna á sjúkrahúsinu...ég fékk svona kort með mynd af mér sem ég
má hafa um hálsinn og veifa fyrir framan allskonar vélar og
spontaniously er ég skráð inn og komin með kvöldmat...undur
tækninnar!

Ég, Sunna, Bylgja, Elísa og Ívar ásamt barninu
hennar Sunnu
»
24.07.2007 00:01:59 / Ása
ð
Lol ég er að blogga
Ég er búin að vera conformist alltof lengi og
fylgja þeirri stefnu að fólk skuli vera hætt að blogga og nú
hef ég ákveðið að vera total non-conformist og blogga feitast
Ég sit hér inná nemó að fara yfir samninga og
fundargerðir og fjárhagsáætlanir og annað sem gerir mig að
mikilvægu gáfuðu manneskjunni sem ég er...ég er líka með
handfrjálsann búnað og sveitt með lappirnar uppá stól sem gerir mig
svolítið svona...eins og ég viti geðveikt hvað ég er að gera og
geti alveg leyft mér að vera með lappirnar uppá stól en geta í
leiðinni horft á allskonar tölur og farið svo í WOW á eftir og eytt
nóttinni þar
Svo er ég líka búin að skrifa Ása forseti á töfluna...
og strjúka yfir hökuna á mér með hugsandi svip
og svo toppa ég þetta með að pikka inn nokkur
ábyrgðarfull orð í word og fá mér svo sopa af kaffinu mínu sem er
svart
Hróaskelda var...var...vá
Vá
Þetta var geggjað...reyndar var þetta viðbjóðslegasta
hróaskelduhátíðin í sögunni, það var geggjað
Ég fékk að vera skítug í 10 daga óáreytt...vaðandi drullu
uppað hnjám hvert sem ég fór...sofa í drullugu blautu tjaldi
(sem var reyndar ekkert osom) vera full í tíu daga(næstum
því)...nota kamra sem voru orðnir fullir af skít á þriðja
degi...fara á GEÐVEIKA tónleika...gefa handalausum betlara allt
klinkið mitt...vá þetta var geggjað
Ég elska hróaskeldu
Ég reyndar fór ekki á eins marga tónleika og ég ætlaði mér en
veðrið spilaði þónokkuð inní...
Byrjaði á Killers tónleikum og þeir voru awesome to the max...lífið
var toppurinn þegar þeir tóku All these things that i have
done...missti reyndar af Arcade Fire sem var sárt, grét aðeins það
kvöld og skar mig smá...sem var reyndar bara til að undirbúa mig
fyrir My chemical romance tónleikana sem voru næstir...kraftur í
þeim og voru alveg geðveikir þó ég hlusti ekki mikið á þá og kunni
fá lög þá var þetta samt alveg djeddað og ég var alveg totally emo
þegar þeir tóku Mama og grét blóði
Næst voru Queens of stone age tónleikarnir og þeir
voru...alveg...vá
Það voru einir geðveikir tónleikar útí eitt...nema það voru fullir
leiðinlegir íslendingar fyrir framan mig svo voru með bögg
The Who á laugardeginum og það geðveikasta sem ég heyrði á allri
hátíðinni var Baba O'Riley...sjitt
Red Hot Chili Peppers svo um kvöldið og það var eins og með alla
hina tónleikana sem ég fór á, alveg geðveikt...það var allt
geðveikt þarna...nema ég vill ekki tala um sunnudaginn...ekki
spurja mig um sunnudaginn
Sunnudagurinn drap mig að innan...eða sunnudagskvöldið...þá fyrst
sökkaði lífið og gaf mér allann rétt til að vera emó og hata
það
Ég elska Hróaskeldu
En Hróaskelda var þó ekki einungis sóðalegheit hjá svona ábyrgu
fólki eins og mér, ónei ónei...við Sindri, Atli og Alli skelltum
okkur í menningarferð inní Roskilde einn daginn og settumst inná
kaffihús (þar sem við fengum kannski nokkur ill augnaráð fyrir að
vera óhreinasta fólkið í Danmörku) og gengum svo um og enduðum með
að ætla að skoða dómkirkjuna...við fórum ekki inní hana, gamalt
fólk vildi taka mynd af skítugu stígvélunum okkar og við enduðum
með að gefa skít í þetta allt og verða full.
Einnig fórum ég Sindri og Sunna í lestarævintýri einn daginn sem
varð þó ekkiert lestarævintýri því það var einhver gömul mella í
miðasölunni sem seldi okkur vitlausann miða svo að skapstyggi
lestarvörðurinn sem var pottþétt ógeðslega viðhaldið hennar og
samstarfsmaður í glæpum gæti komið og sektað okkur og við komumst
aldrei til Koge svo við ákváðum bara að gefa skít í þetta líka og
verða full
Ég er svo there aftur næsta ár
Þó ég eigi barn
Þá myndi ég taka krakkann með mér
Ég elska Hróaskeldu

Nej nej nej nej nej
Kom svo bara gjörsamlega blönk heim til mín
og er ennþá blankari núna...en ég hef þó allavega minninguna um
hróaskeldu
Minningin um sóðalega tjaldsvæðið okkar lætur mér líða eins og
pappakassinn minn fyrir aftan skaffó sé raunverulegt heimili...
Ég fór á Harry Potter í bíói á föstudaginn!
Ég og Katrín mættum í bíóið klukkan 7 til að kaupa okkur miða
á 9 sýninguna og biðum svo bara með eftirvæntingu með Bylgju
(sem hló btw að okkur þegar við sögðumst vera að fara á Harry
Potter og sagði að við værum asnalegar en fór svo á
hana daginn eftir)(feis) Fórum svo í bíóið um 8 leitið og
komum okkur fyrir í röðinni fyrir aftan hóp af strákum í 5 bekk og
horfðum illilega á þá...svo þegar salurinn opnaði
loksins lentum við í kapphlaupi við bastarðana og unnum
feitast og náðum miklu betri sætum LOL! Svo erum við líka
stærri en þeir svo að við hefðum unnið sama hvernig kapphlaupið
hefði farið
En myndin var samt alveg osom...reyndar miklu búið að sleppa úr
bókinni sem gerði mig ögn vonsvikna...en góð engu að síður
Svo er ég bara að bíða eftir að eignast ögn pening svo ég geti
keypt mér nýju bókina og þegar það gerist neyðist ég til að segja
upp vinnu og öllu og einbeita mér að einu sönnu ástinni í lífinu
mínu, Harry Potter, í svona tvær vikur og koma svo skríðandi til
baka
Gaur ég hlakka til
Versló á næsta leiti...ég held að ég geri ekki
neitt...ég er sóðalega blönk, sóðalega búin að fá nóg af því að
gista í tjaldi,sóðalega löt...og já...bara...sóðaleg yfir höfuð
Jájá
Versló sökkar bara, alveg eins og áfengi og aðrar eins
skemmtanir
Nema Harry Potter
Ég þori ekki að fara fram
Skólinn er draugalegur í myrkri
Ég ætla að vekja mömmu og biðja hana að tala við mig meðan ég labba
út
djók

damn
Vá...ég hélt virkilega að heilinn á mér myndi
hitna eftir að ég væri búin að blogga smá en þetta er ekki ennþá
komið...held hann hafi ofkælst þarna úti...eða þá að ástæðan geti
verið að Hasselhoff hangir þarna uppá vegg í einhverri speedo og
horfir á mig brosandi
Það er meira truflandi en fólk heldur
ég keypti mér tvær einnota myndavélar...þær vöktu
skammvinna gleði
En nú er kominn tími til að ég geri ég
það sem allir latir en þó ábyrgðarfullir og snjallir nefndarmenn
myndu gera þegar þeir vita ekki hvað þeir eiga að segja og finna að
þeir eru farnir að líta út eins og asnar

BÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆ
»
26.04.2007 22:41:05 / Ása

Halló
Það er ógeðslega langt síðan ég hef bloggað en
þetta var allt planað...vildi láta ykkur þrá blogg og vera
örvilnuð heima hjá ykkur á kvöldin meðan ég sat og skoðaði önnur
blogg og sagði Haha...og þar sem Valdi kom með smá Gloomy Sunday á
þetta og Gloomy Sunday er jú sjálfsmorðslagið þá ákvað ég að swoopa
inn og bjarga deginum með því að blogga
Eníveis...
Ég er eiginlega alveg sjúklega afbrýðisöm útí stelpuna sem býr á
móti mér...hún á stórt trampólín og síðan hún dró það fram hefur
gestagangurinn heim til hennar verið óstöðvandi! Ég vildi að ég
ætti stórt trampólín...hún virðist skemmta sér vel þaðan sem ég sit
í eldhúsinu mínu og horfi útum gluggan og dreymi um að það sé ég
sem er að hoppa á trampólíninu með glaðlegt lag í bakrunni og
ýmsir kostulegir karakterar kíkja við og kasta á mig kveðju meðan
glaðleg mamma kemur með límonaði út og hundurinn hleypur í
garðúðaranum...næs
Þar sem ég er nýjasti
stærðfræðiheilinn í skólanum þá hef ég nú komið með afaráhugaverða
kenningu sem sannar það sem menn hafa flestir sagt í gegnum tíðina,
semsagt að Stærðfræði = Satan
En kenningin er svona (og er eitthvað svipuð formúlunni fyrir
summu mismunarunu):
Sn = A1 + An
2
jú og ef við rýnum aðeins í þetta fáum við út Snatan og þar sem
þetta er stærðfræði er við hæfi að draga aðeins frá og fiffa þetta
aðeins til og ef við deilum svo tveimur í þetta þá hverfur þessi 1
sem er þarna og þar með fáum við út það einfalda svar...Satan
Þar höfum við það og ég hef nú fyrir eitt og allt sannað að
það sé einfaldlega guðspjall að kenna stærðfræði í skólum og þar
sem ég er heitkristin þá ætla ég að fara á fund
með Skólameistara á morgun og leggja fram gögn
mín Munið svo bara að þakka mér þegar þið
eruð hætt að læra stærðfræði!
En jú ég er víst orðin
skemmtanastjóri NFNV á næstu önn og var alveg kosin með 100%
atkvæða á móti öllum hinum tíu frambjóðendunum!
Sem gátu bæ ðe vei tekið 200 í
bekk! Okei kannski var ég eini
frambjóðandinn og þurfti að stama útúr mér ræðu
sem hljómaði einhverveginn svona: Hæ ég
heiti Ása
og...og...og...uhhh...hmm...hehe...oooooog...(ÉG SKILA
AUÐU)...lol (ÖMURLEGASTA RÆÐA Í HEIMI)...Þið hafið eiginlega
ekkert val, það er ég eða ekkert (FARÐU AF
SVIÐINU) og þurfti svo að þamba ostrusósu með
hvítlauksmauk og hvítlaukssalti og það var engin kosning
heldur var ég sjálfkjörin því enginn annar vildi þetta
en ég er SAMT skemmtanastjóri
FEEIS HAHA!..haha..haa...hmm
Made myself feel bad
Bylgja verður félagi minn í þessu nemendafélagi en hún er
einmitt ritstjóri og ætlar að koma með sóðalegt slúður í hverri
viku
Einnig eru þau Hlynur Ká, Friggi Lax, Sólveig og Adam í nemó en
enginn forseti er kominn sem ég túlka sem beiðni til mín til að
taka að mér forsetaembætti þar sem ég er svo góð í
stærðæfræði!
Ég var að skoða einhverja síðu um
daginn þar sem skoðanakönnunin hljómaði svona:
Ert þú með Glútenofnæmi?
?
Af einhverri ástæðu lollaði ég dálaglega af þessari spurningu
Svo sé ég það núna að hún er bara engann veginn fyndin...vá
annað skiptið í þessu bloggi sem ég læt sjálfri mér líða
illa
Annars er ég bara með sár í báðum
munnvikjunum þar sem ég þarf alltaf að vera jafn eitursvöl
og fara í keppni við fólk um hvor getur troðið hnefanum á
sér uppí sig á undan og lít alltaf út eins og ég sé með
geðveikt mikla tómatsósu í munnvikinu
Ég og Valdi og Sunna vorum líkar úbersvölogalvegendalausttöff
í gær...
Við lentum í hnakkrifrildi við 4 tíu ára krakka, og þessi helvíti
náðu að reita mig svo mikið til reiði að ég var farin að
skjálfa...reyndar var einn strákurinn rauðhærður svo það skýrir
eitthvað...þetta rifrildi byrjaði hjá gervigrasvellinum og endaði
ekki fyrr en með The Ultimate Showdown á Shell sport, eftir að við
vorum búin að vera svalari en Denzel og bruna í burtu á
eitursvölum bíl, og allt gerðist eins og í laginu og við unnum
með yfirburðum og þeir fóru heim and we laughed and they cried og
allt varð gott!
Þar til ég fattaði að ég hafði gleymt símanum mínum á Shell og
þurfti að fara ein inn aftur til að ná í hann...þá var ég
hrædd
Gloomy Sunday...það er sko lag í lagi!
Lol...orðasprell með Ásu á fimmtudagskvöldi...meðan...meðan vinir
hennar eru úti að skemmta sér, er hún að gera orðaspreeell
hmm...þriðja skiptið
Allavega...þá hvet ég alla til að ná sér í þetta innilega emó en
samt kúl emó lag
Það var samið 1933 í Ungverjalandi af einhverjum gaur sem var
pottþétt emó og útgrátinn gutti sem var samkynhneigður en þorði
aldrei að koma útúr skápnum svo hann samdi lag handa ímyndaðri
kærustu...
Allavega...þetta lag var síðan bannað því að fólk fór bara að
fremja sjálfsmorð útaf því og við það og fór að skrifa dramatísk
suicide notes sem innihéldu þennan texta og það endaði með að
gaurinn framdi sjálfur sjálfsmorð útaf því og það er ennþá bannað á
útvarpsstöðum í nokkrum löndum!
Verum öll rebelar og hlustum á þetta lag!

Kær kveðja.
Ása María Guðmundsdóttir
Skemmtanastjóri
jáá
»
03.04.2007 04:07:53 / Ása
Lol ég er vakandi...
Mér finnst það ekki gaman!...veðrið ákvað að vera tík og halda
fyrir mér vöku með einhverjum ömó stormi sem hljómar eins og
fimmtán víkingasveitir séu fyrir utan að reyna að komast inní
kiddydungenoið mitt!
Ég vaknaði klukkan þrjú í gær, það gæti verið ástæða...eða þá að ég
fékk símtal fyrir klukkutíma sem vakti mig og ég fór að hugsa um
hróarskeldu og gat ekki sofnað aftur af spenningin...það er erfitt
að vera spenntur og þurfa að bíða í þrjá mánuði!
En ég er samt orðin býsna fróðari núna heldur en ég væri ef ég
hefði ekki vaknað...til dæmis veit ég að Seiðandi fer að sofa
hvenær sem hann vill og hlýðir engum reglum, hann er rebel...ég
veit að froskarnir hennar Bylgju sem ég fæ þá ánægju að passa í
páskafríinu lykta eins og Rafael þegar hann prumpar, ég veit að
Teitur á engar sígarettur fyrir morgundaginn og ég veit það að Elsa
er að fara að setja fleiri myndir inn á drottningasíðuna
Ég fór suður um helgina og það var
alveg geggjað...lagði af stað um fjögur suður ásamt þeim Bylgju,
Valda zippó og Aþenu...ferðin sjálf var geðveik...alveg hellingur
af lolli og látum! Kom suður og spreytti mig á því að keyra ein í
RVK í fyrsta skiptið...byrjaði á því að keyra á móti umferð og var
svo föst inná bensínstöðvarplani í tíu mínútur að reyna að finna
leiðina út, virtist alltaf vera að keyra á móti umferð hvar sem ég
var...lét svo ellefu ára barn lýsa mér leiðina uppí Breiðholt...það
var álíka jafngaman og þegar hún vann mig illilega í Trivial
Pursuit í sumar...týndist í Breiðholtinu með batteríislausann síma
og við það að verða bensínlaus...það var geggjað en reddaðist þó á
endanum!
Á laugardeginum voru Músíktilraunir þar sem Hip Razical tóku þátt
og ég verð að segja það og ykkur er frjálst að kommenta og segja
Róleg Vinan...en þeir voru alveg geðveikir og ég var alveg
innilega stolt af því að þekkja þessa kauða því þeir voru bestir þó
þeir hafi ekki unnið!
BESTIR
Róleg vinan
Svo var bara bjórinn tekinn í hönd og við Bylgja eyðilögðum vonir
Valda um að geta nokkurntíma flutt aftur til RVK með að gera hann
og okkur að fullkomnum fíflum fyrir framan vini hans sem var
geggjað líka...fórum á Players þar sem Bylgja tók mynd af mér vera
að ganga inn á þennan fræga stað, við erum bara tvær stúlkur að
norða að reyna að skemmta sér í borg óttans...vorum rekin út af
billiardstað þar sem við hræktum í holu, gerðum símaöt og aprílgöbb
og ferðuðumst í bíl með án efa svölustu gaurum í heimi
Á sunnudaginn tínsaðist ég alveg geggjað GG osom to the max lolol
mikið og eyddi einum og hálfum tíma í að taka myndir af sjálfri
mér...það var geggjað
Ég verð samt að segja það að vá
hvað allir eru eitthvað sjúklega Emo fyrir sunnan og eru bara ekki
að grínast með það!...mér leið hálfilla á tímabili og vissi ekki í
hvorn fótinn átti að stíga þegar þeir litu á mig með toppana sína,
ögn af svörtum eyeliner undir augunum og vonbrotið
augnaráðið og hugsuðu...þessi veit ekki enn hversu mikill
sársauki lífið er...snökt...þú varst búinn að lofa að gráta ekki í
kvöld!...og felldu svo tár, það var geðveikt
vandræðalegt
Ég vona að ég fái
páskaegg
Páskafrí...ég veit ekki hvort ég á
að gleðjast yfir því eða ekki...ég gleðst yfir því að geta sofið út
og gert hvað sem ég vil en ég gleðst samt ekki yfir því að geta þá
ekki sofnað á næturnar því ég svaf svo lengi um daignn því að ég
sofnaði ekkert nóttina áður og AAA þetta er eilífur
vítahringur!...ég er bara ekki svöl ef ég geri þetta ekki
svona...Ég er líka ekkert að vinna nema bara um helgina mjög
líklega sem þýðir að ég kemst ekki á ball á Blöndós og ekkert djamm
fyrir mig nema kannski á miðvikudaginn...kannski Sigló, kannski
Víðihlíð, maður veit aldrei!
lolololol
Ég hef svo misst blogghæfileikann
Vá hvað ég hef svo enga
sumarvinnu...ég ætti mjög líklega að sækja um að fara á
atvinnuleysisbætur og gefa bara skít í þetta allt og sofa þangað
til ég fer á Roskilde...
Kannski ég ætti að nýta mér nýtilkomin lög
En það myndi ekki ganga því ég týndi snyrtitöskunni minni fyrir
sunnan og yrði því sóðaleg krakkhóra án málningar og það er ekki í
tísku á króknum!
Ég held að ástæðan fyrir að ég get
ekki sofnað séu froskarnir...mig dreymdi óhugnalegann draum um þá
um daginn...þeir voru tenntir og voru með djöfulleg plön...ég var í
hanska og sló þá alltaf frá mér en þeir föttuðu þá bar aað hoppa
báðir í einu og mishátt svo ég gat ekki slegið þá frá mér!
Svo lít ég á búrið og sé þá hanga upp við vegginn með magann að
honum og ég get ekki annað en komið með smá aww *roðn*gelgj*
sædusædu lol HEHE
Þeir eru krútt...illa lyktandi krútt
Lol eins gott að Rafael veit ekki af þeim...það yrði styrjöld sem
Rafael myndi líklega vinna þar sem hann er svona 200 kílóum þyngri
en þeir og gæti notað special trikkið sitt sem er að setjast á
þá

»
26.03.2007 18:13:48 / Ása
Tölvan mín er mella
Hún stökk á tækifærið þegar vændi var lögleitt og seldi sig sem
ódýrast!
Henni er sama þó hjarta Guðbjargar kennara verði brostið þegar við
náum ekki að skila efninu á plaggatið okkar í tæka tíð fyrir
prentun, henni er sama þó að ég geti bara komist í tölvu svona
tvisvar á dag og þarf þá að hlusta á tónlist með óeðlilegum
truflunum eða vera ekki með nýja msnið sem er miklu meira kúl en
hitt, henni er sama þó mér leiðist í félagsfræð...íslensku! fokk
íslenska með bifukollunni á morgun án tölvunar minnar...það
verður einn leiðinlegur tími
Ég vil þakka Bylgju fyrir að leggja svartagaldur á hana til að fá
hana í þetta ástand.
Svona pakk

Talvan mín ef hún væri manneskja
Annars var ég bara vinnandi um
helgina mest partinn, skúraði einnig nokkuð og eldaði svei mér
þá...
Varð þeirri lukku aðnjótandi að vera á vinna í nætursölunni þegar
stærstur hluti kennara FNV stormaði inn í sínu fínasta og lagið
undir sig dansgólfið og það eina sem ég gat hugsað var hvað ég var
fegin að mamma var hætt að kenna..
Næsta hugsun var svo feginleiki yfir að vera ekki að drekka því eg
hefði ábyggilega lent á spjalli við einhvern kennarann og talað af
mér og verið rekin úr skóla og endað í sama starfi og talvan
mín
En annars er það bara Borg Óttans
næstu helgi þar sem hin stórmerkilega hljómsveit Hip Razical komst
áfram í Músíktilraunum (Til hamingju strákar lol) og taka
því þátt í úrslitunum sem verða á laugardaginn...
Ó hvað ég bara hata þessa borg...en þetta verður samt held
ég skemmtileg ferð eins og seinasta ferð var...ég er
búin að vera með bílpróf í tæplega eitt og hálft ár og ég er
að fara að keyra eitthvað alminnilega í Reykjavík fyrst
núna.
Ég þori því ekki.
Bílstjórar í Reykjavík eru eins og hestar, þeir skynja óttann
og nýta ser hann útí ystu æsar þar til ég verð þessi sem talar
við ímyndaðar lestir
Ég er þó reið og bitur og er að vinna í harðorðu
bréfi til miði.is
Ég keypti mér miða á Blonde Redhead tónleikana þarnæstu
helgi og las greinina á miði.is fram og til baka og ákvað að
það var ekkert því til fyrirstöðu að ég vippaði út 4000 kalli
til að fjárfesta í einu stykki miða en tók svo eftir
að seinna sama dag þá voru þau búin að bæta við 20 ára
aldurstakmark og ég var alveg no they didn't!
En þeir gerðu það samt...dræsur og farísear allir með tölu, ég
ætla samt ekki að kalla þá dræsur og farísea í
bréfinu því þá verða þeir örugglega sárir og bitrir við mig á móti
og senda mér harðort bréf og ég fer að grenja og þeir verða alveg
omg lol crybaby og það kemur ekki vel út fyrir neinn!
Páskafríið byrjar á föstudaginn...það verður
superserialnice...ég ætla að tjilla þar til ég dey í
páskafríinu...ég ætla samt líka ða vinna smá og læra dáldið
Ég ætla í Móskóga í páskafríinu...fyrstu tíu mínúturnar sem ég er í
Móskógum elska ég þá alltaf...svo þegar ég er búin að vera stolt af
húsinu í smá stund, búin að heilsa öllum, finna vatnið í pottinum
þá sest ég bara niður...gríp mér andrésblaði sem ég er búin að lesa
svona þrjúhundruð sinnum síðan ég var tíu ára eða eitthvað og finn
snögglega upp afsökun af hverju ég þurfi að vera heima á krók og
bruna svo heim og er þar með búin að eyða óhemjumikið af bensíni og
tíma til einskis...
Ég elska svona ferðir
Eins gott að ég fái líka páskaegg...þau eru skemmtileg
Ég var að fatta um daginn hvað ég er bara innilega
þakklát frá hjartanu að Allt í drasli skuli ekki lengur
vera sýnt á Skjá einum...ég er að hugsa um að senda
dagskrárstjóra Skjás eins þakkarbréf og nærbuxur af Sunnu
En mín bíður RRR svo bless
Muse - Unintended
»
20.03.2007 20:13:33 / Ása

Mér finnst leiðinlegt að mega ekki
lengur fara í eitthvað sem er með Junior í nafninu sínu, mér finnst
líka leiðinlegt að ég megi ekki lengur vera í skemmtilegu
bankareikningunum í bankanum sem gáfu manni pening og eitthvað
skemmtilegt dót.
Mér finnst líka leiðinlegt að vera ekki með stöð tvö lengur og
þurfa að horfa á Skólahreysti á kvöldum sem þessum meðan Simpsons
er að stríða mér með að vera ruglað á stöð tvö...
En það sem mér finnst leiðinlegast eru þvottaefnis, klósetthreinsis
eða blettahreinsisauglýsingar sem voru á ensku en hafa verið þýdd
yfir á íslensku...þær sökka
Páskafríið er að koma og mér finnst
það alveg geggjað ekki leiðinlegt
Í páskafríinu ætla ég að vera full, vinna og fara á tónleika...
Blonde Redhead 5 apríl og ég hlakka til!...Páll Óskar á barnum og
jújú í vinnunni á föstudaginn þá sendum við honum afmæliskveðju og
það var alveg geggjað osom to the max...ég laug að kallinum á
effemm níufimmsjö að við værum í staffapartíi...hann yrði örugglega
sár ef hann vissi að ég hefði verið að ljúga, ég var bara svo sár
yfir að ég sé ekki ennþá búin að fá að fara í staffapartí á
shellinu en það var jú aðalástæða þess að ég byrjaði að vinna
þar...
Svo ég varð að ljúga til að gera sjálfa mig glaða
Annars er ég bara sátt við Blöffa
núna þar sem ég fékk að ná stærðfræði...borgar sig greinilega að
senda einni fleiri muffinskörfu en venjulega!
Lololololol þulurinn á stöð eitt
vissi ekki að hann væri í loftinu og fór að hreinsa úr tönnunum með
tungunni og það heyrðist svona smússhljóð...niðurlæging annara
veldur mér gleði
Muse og Arcade Fire nýjasta
viðbótin á Hróarskeldu
Ég er svo glöð
Það er ekki langt í Hróarskeldu!
Opnu dagarnir voru da bomb!
Við fórum í ljósmyndamaraþon sem við unnum ekki þrátt fyrir
innilega túlkun á Pálma Þór og fallegann mennskann pýramída en það
var samt gaman...
Tekken mótið var skemmtilegra en Tekken mótið í fyrra þar sem ég
smyrslaði gömul sár síðan í fyrra og vann Katrínu
Reiðtúrinn minnti mig á hversu lunkinn knapi ég er...sérstaklega
þegar hestfjandinn ákvað að brokka innyflin á mér í hnút, það
var ljúft.
Tónleikar á föstudagskvöldið og þeir voru skemmtilegir...mikið af
góðu tónlistarfólki í skólanum klapp klapp
Árshátíðin var skemmtilegasta árshátíð sem ég hef farið á...Auddi
Blöndal var fyndinn, maturinn var góður, skemmtiatriðin skemmtileg
og Björn Magnússon dansar vel
Ballið var skondið, hellingur af fólki og flestir hressir...týndi
jakkanum mínum og var spontaniously komin heim til mín
Incubushelgin var líka
geðveik...fór suður með Sunnu, Sindra, Valda og Sólveigu
og í Staðarskála var ég orðin fulli leiðinlegi gaurinn...kom suður
og skellti mér beint til Söndru þar sem ég gisti
og skellti mér í teiti þar
Kringlan var leiðinleg eins og venjulega og jafnvel leiðinlegri ef
eitthvað var...Sunna fékk smáskammt af karma og fékk engann
subway
Tónleikarnir voru góóðir, ekkert meira að segja um það,
góð stemning í salnum og bara virkilega góðir
tónleikar
Ég hef aldrei skilið
gjörningalistamenn...hvað eru þeir að reyna að tjá með að
borða augu eða rjóma af klósettsetu eða dansa nakinn í blóði
af tíu einhyrningum og reykja svo öskuna af ömmu sinni?
Þröngsýna Ása
Lol ég er farin
The Animals - Don't let me be
misunderstood
»
Síður: 1 2 3 ... 10
|
|