Síðast inni
Ég var síðast inni þann 5 janúar
20.03.2007 20:13:33 / Ása

I'm just a soul who's intentions are good

Cyanide and Happiness, a daily webcomic

Mér finnst leiðinlegt að mega ekki lengur fara í eitthvað sem er með Junior í nafninu sínu, mér finnst líka leiðinlegt að ég megi ekki lengur vera í skemmtilegu bankareikningunum í bankanum sem gáfu manni pening og eitthvað skemmtilegt dót.
Mér finnst líka leiðinlegt að vera ekki með stöð tvö lengur og þurfa að horfa á Skólahreysti á kvöldum sem þessum meðan Simpsons er að stríða mér með að vera ruglað á stöð tvö...
En það sem mér finnst leiðinlegast eru þvottaefnis, klósetthreinsis eða blettahreinsisauglýsingar sem voru á ensku en hafa verið þýdd yfir á íslensku...þær sökka

Páskafríið er að koma og mér finnst það alveg geggjað ekki leiðinlegt
Í páskafríinu ætla ég að vera full, vinna og fara á tónleika...
Blonde Redhead 5 apríl og ég hlakka til!...Páll Óskar á barnum og jújú í vinnunni á föstudaginn þá sendum við honum afmæliskveðju og það var alveg geggjað osom to the max...ég laug að kallinum á effemm níufimmsjö að við værum í staffapartíi...hann yrði örugglega sár ef hann vissi að ég hefði verið að ljúga, ég var bara svo sár yfir að ég sé ekki ennþá búin að fá að fara í staffapartí á shellinu en það var jú aðalástæða þess að ég byrjaði að vinna þar...
Svo ég varð að ljúga til að gera sjálfa mig glaða

Annars er ég bara sátt við Blöffa núna þar sem ég fékk að ná stærðfræði...borgar sig greinilega að senda einni fleiri muffinskörfu en venjulega!

Lololololol þulurinn á stöð eitt vissi ekki að hann væri í loftinu og fór að hreinsa úr tönnunum með tungunni og það heyrðist svona smússhljóð...niðurlæging annara veldur mér gleði

Muse og Arcade Fire nýjasta viðbótin á Hróarskeldu
Ég er svo glöð
Það er ekki langt í Hróarskeldu!

Opnu dagarnir voru da bomb!
Við fórum í ljósmyndamaraþon sem við unnum ekki þrátt fyrir innilega túlkun á Pálma Þór og fallegann mennskann pýramída en það var samt gaman...
Tekken mótið var skemmtilegra en Tekken mótið í fyrra þar sem ég smyrslaði gömul sár síðan í fyrra og vann Katrínu
Reiðtúrinn minnti mig á hversu lunkinn knapi ég er...sérstaklega þegar hestfjandinn ákvað að brokka innyflin á mér í hnút, það var ljúft.
Tónleikar á föstudagskvöldið og þeir voru skemmtilegir...mikið af góðu tónlistarfólki í skólanum klapp klapp
Árshátíðin var skemmtilegasta árshátíð sem ég hef farið á...Auddi Blöndal var fyndinn, maturinn var góður, skemmtiatriðin skemmtileg og Björn Magnússon dansar vel
Ballið var skondið, hellingur af fólki og flestir hressir...týndi jakkanum mínum og var spontaniously komin heim til mín

Incubushelgin var líka geðveik...fór suður með Sunnu, Sindra, Valda og Sólveigu og í Staðarskála var ég orðin fulli leiðinlegi gaurinn...kom suður og skellti mér beint til Söndru þar sem ég gisti og skellti mér í teiti þar
Kringlan var leiðinleg eins og venjulega og jafnvel leiðinlegri ef eitthvað var...Sunna fékk smáskammt af karma og fékk engann subway
Tónleikarnir voru góóðir, ekkert meira að segja um það, góð stemning í salnum og bara virkilega góðir tónleikar

Ég hef aldrei skilið gjörningalistamenn...hvað eru þeir að reyna að tjá með að borða augu eða rjóma af klósettsetu eða dansa nakinn í blóði af tíu einhyrningum og reykja svo öskuna af ömmu sinni?
Þröngsýna Ása

 Lol ég er farin

The Animals - Don't let me be misunderstood

 

 

Sindri Njáll skrifaði
Klapp klapp fyrir þessu bloggi, lét mig vuah aðeins. En svoo sammála þér með þvottaefnisauglýsingarnar, aðeins ein auglýsing sem ég fyrirlít meira, og það er auglýsingin með Helga úr idolinu þar sem hann segir "Þetta kalla ég sko Bónus HEHE" Djöfull fokkin hata ég hann..
Valdi skrifaði
En þú mátt fá þér kredit og vísa kort :D
Konni skrifaði
Sláðu bara 3 flugur í einu höggi um páskana og vertu að vinna full á tónleikum, sparar tíma þannig.
Bylgja skrifaði
Ég hata Harpic auglýsinguna með manninum með gulu tennurnar sooo miiikið!! Mér finnst að visa ætti að gefa okkur dót með mánaðarlega reikningnum. Sona visa sparibaukur eða visabangsi, sem maður gæti skemmt sér við að pynta...helvítis visa...

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.