Tölvan mín er mella
Hún stökk á tækifærið þegar vændi var lögleitt og seldi sig sem
ódýrast!
Henni er sama þó hjarta Guðbjargar kennara verði brostið þegar við
náum ekki að skila efninu á plaggatið okkar í tæka tíð fyrir
prentun, henni er sama þó að ég geti bara komist í tölvu svona
tvisvar á dag og þarf þá að hlusta á tónlist með óeðlilegum
truflunum eða vera ekki með nýja msnið sem er miklu meira kúl en
hitt, henni er sama þó mér leiðist í félagsfræð...íslensku! fokk
íslenska með bifukollunni á morgun án tölvunar minnar...það
verður einn leiðinlegur tími
Ég vil þakka Bylgju fyrir að leggja svartagaldur á hana til að fá
hana í þetta ástand.
Svona pakk

Talvan mín ef hún væri manneskja
Annars var ég bara vinnandi um
helgina mest partinn, skúraði einnig nokkuð og eldaði svei mér
þá...
Varð þeirri lukku aðnjótandi að vera á vinna í nætursölunni þegar
stærstur hluti kennara FNV stormaði inn í sínu fínasta og lagið
undir sig dansgólfið og það eina sem ég gat hugsað var hvað ég var
fegin að mamma var hætt að kenna..
Næsta hugsun var svo feginleiki yfir að vera ekki að drekka því eg
hefði ábyggilega lent á spjalli við einhvern kennarann og talað af
mér og verið rekin úr skóla og endað í sama starfi og talvan
mín
En annars er það bara Borg Óttans
næstu helgi þar sem hin stórmerkilega hljómsveit Hip Razical komst
áfram í Músíktilraunum (Til hamingju strákar lol) og taka
því þátt í úrslitunum sem verða á laugardaginn...
Ó hvað ég bara hata þessa borg...en þetta verður samt held
ég skemmtileg ferð eins og seinasta ferð var...ég er
búin að vera með bílpróf í tæplega eitt og hálft ár og ég er
að fara að keyra eitthvað alminnilega í Reykjavík fyrst
núna.
Ég þori því ekki.
Bílstjórar í Reykjavík eru eins og hestar, þeir skynja óttann
og nýta ser hann útí ystu æsar þar til ég verð þessi sem talar
við ímyndaðar lestir
Ég er þó reið og bitur og er að vinna í harðorðu
bréfi til miði.is
Ég keypti mér miða á Blonde Redhead tónleikana þarnæstu
helgi og las greinina á miði.is fram og til baka og ákvað að
það var ekkert því til fyrirstöðu að ég vippaði út 4000 kalli
til að fjárfesta í einu stykki miða en tók svo eftir
að seinna sama dag þá voru þau búin að bæta við 20 ára
aldurstakmark og ég var alveg
no they didn't!
En þeir gerðu það samt...dræsur og farísear allir með tölu, ég
ætla samt ekki að kalla þá dræsur og farísea í
bréfinu því þá verða þeir örugglega sárir og bitrir við mig á móti
og senda mér harðort bréf og ég fer að grenja og þeir verða alveg
omg lol crybaby og það kemur ekki vel út fyrir neinn!
Páskafríið byrjar á föstudaginn...það verður
superserialnice...ég ætla að tjilla þar til ég dey í
páskafríinu...ég ætla samt líka ða vinna smá og læra dáldið
Ég ætla í Móskóga í páskafríinu...fyrstu tíu mínúturnar sem ég er í
Móskógum elska ég þá alltaf...svo þegar ég er búin að vera stolt af
húsinu í smá stund, búin að heilsa öllum, finna vatnið í pottinum
þá sest ég bara niður...gríp mér andrésblaði sem ég er búin að lesa
svona þrjúhundruð sinnum síðan ég var tíu ára eða eitthvað og finn
snögglega upp afsökun af hverju ég þurfi að vera heima á krók og
bruna svo heim og er þar með búin að eyða óhemjumikið af bensíni og
tíma til einskis...
Ég elska svona ferðir
Eins gott að ég fái líka páskaegg...þau eru skemmtileg
Ég var að fatta um daginn hvað ég er bara innilega
þakklát frá hjartanu að Allt í drasli skuli ekki lengur
vera sýnt á Skjá einum...ég er að hugsa um að senda
dagskrárstjóra Skjás eins þakkarbréf og nærbuxur af Sunnu
En mín bíður RRR svo bless
Muse - Unintended