Hæ ég heiti Ása og ég er personal shopper fyrir stjörnurnar...ójá...í skaffó, í skaffó gerist ýmislegt...þar afgreiddi ég Baltasar Kormák og hann og Lína voru alveg græænar af öfund!
En ég leyfði þeim að baða sig í ljómanum með mér...ég er enginn bastarður
Eða reyndar er ég fædd utan hjónabands, en það þykir engin skömm nú á dögum
Een ég var að koma frá Glasgow...það var geðveikt...sóðalegasta ferð alheimsins
Ég fór á strippstað, það var einn sleezy staður...hliðargatan sem ég týndist í með ruslagámunum og ógeðinu var fallegri...þær ætluðu að krækja í mig og hafa af mér pening, ég hélt nú ekki, þær máttu hafa pening af fylgdarliði mínu...
En nú ætla ég aldrei að drekka vodka í redbull aftur...nema þegar ég sakna ferðarinnar og vill fá smá smjörbragð af glasgow...ég hló síðan alla nóttina, ég held það hafi verið redbullinu að kenna, ég höndla ekki orkudrykki...
Ég verslaði líka subbó mikið í Glasgow...það var allt svo ódýrt þarna, en enn og aftur féll ég í þá gildru að þora ekki að segja nei þegar fólk er óhugnalega vingjarnlegt við mig og eyddi 1500 kalli í það ljótasta glingur sem ég hef séð á ævi minni...en allt hitt var geggjað
Svo hitti ég nunnu sem sagði að ég myndi öðlast ævarandi hamingju því ég brosti svo til hennar þegar hún var að tala við mig um eitthvað sem ég skildi ekki því skoskur hreimur er tungumál grameðlna...allavega þá var ég svo ánægð yfir ævarandi hamingjunni minni að ég gaf henni allt klinkið mitt og hún gaf mér bók sem ég ætla aldrei að lesa...síðan ákváðum við að vera vinir að eilífu og skiptast á bréfum.
Í alvöru, við vorum öll eins og fávitar þegar við þurftum að eiga einhver samskipti við skotana, ekki hægt að panta sér kjúkling án þess að vera asnalegur, ekki hægt að biðja um herbergisþjónustu án þess að fá kaffibolla sem maður pantaði ekki...
Ég svaf samt á ógeðslegasta svefnsófa í heiminum og nú eru beinin mín með för eftir gormana sem munu aldrei fara
Þetta var geðveik ferð
Þessi helgi var líka osom...tók því rólega og keyrði á föstudagskvöldið, var að vinna á laugardaginn þar sem, jú, ég afgreiddi baltasar kormák...úff...og svo eftir vinnu fórum við Ragnar í Móskóga sem var best, það var reyndar ekkert skemmtilegt veður og það er alltaf hálf skuggalegt að vera þarna þegar það var komið myrkur en þar sem ég hef vöðva á við asnalegu gaurana í júróvisjon laginu sem var að reyna að komast áfram þá hafði ég ekkert að óttast...við elduðum, spiluðum, horfðum á tímon og púmba og lékum okkur í nintendo...ég elska Móskóga
En Árshátíðin er á föstudaginn, djöfull hlakka ég til...samt ekki ef ég þarf að halda ræðu, þá er ég að hugsa um að þykjast vera veik, eða bara dáin...
Það er samt alltaf gaman á árshátíðinni, nema þegar auddi blöndal kallaði okkur drollurnar druslur á seinustu árshátíð...
Hann er drusla
Opnu dagarnir eru á undan og ég er sár að geta ekki tekið mikið þátt í þeim...en ég fer allavega í ljósmyndamaraþonið og á Tekken mótið...sé til með hitt...var reyndar búin að lofa Helgu að mæta í danskann dans, en ég held ég beili
ÉG ÆTLA AÐ FARA AÐ SOFA GÓÐA NÓTT!
(hendi líka inn myndum af Glasgow þegar talvan mín hættir að vera stór retard)