05.01.2009 10:36:45 / Ása
Jæja
Ég hef ákveðið að blogga en í stað þess að opna eina síðuna í viðbót sem ég kann síðan ekkert á eða er neydd til að borga pening til að skrifa á þá mun ég hripa niður nokkur orð á þessa blessuðu gömlu góðu síðu
Það er semsagt komið árið 2009 og ég er orðin tvítug...tvítug og fimm daga meirasegja
Ragnar er 24 í dag sem gerir hann að gömlum manni með skyr í yfirvaraskegginu
Jólin eru búin að vera da bomb
Sofa, vinna, borða, sofa, opna pakka, borða, opna pakka, sofa, vinna...
Djamma
Ragnar fór frekar snemma yfir þannig að ég þurfti að fara með kortin ein, ég söng jólahjól á meðan, það var jólalegt
Maturinn var óhuggulega góður, mamma og pabbi eru kokkar af bestu gerð.
Ég fékk ótal jólagjafir, Rafael fékk líka ótal jólagjafir en samt er hann bara hundur
Skellti mér síðan á haugafyllerí milli jóla og nýárs sem endaði með slefi og lúr á gólfinu
Áramótin voru hrikalega rafmagnslaus, kerti og kampavín. Huggulegt
Ragnar var hjá mér svo hann fékk að kynnast þeirri klikkun sem er áramót hjá niðjum Ásu Sigríðar og Sæmundar Árna. Honum leist vel á það og kúrði með Kristján Tjörva í myrkrinu þegar enginn sá til.
Skaupið var skemmtilegt, ég var full, sem betur fer búin að fara í sturtu áður en heitavatnið fór...
Kreppan hafði ekki áhrif á flugeldakaup í stórfjölskyldunni þetta árið og skutum við upp mörgum peningum og mikilli vinnu kínveskra barna
Síðan blikkaði skiltið úr 8 í 9 og allir kysstust og sungu áramótalagið.
Ég ákvað að fara í göngutúr á villtu hliðinni og hélt uppi blysi í 5 mínútur þar til að það slökkti á sér
Ég fékk ekki að skjóta upp hvorugri tertunni sem við Ragnar keyptum, ég var ekkert sár
Við vorum með tvo unga kana í heimsókn um áramótin, þeir borðuðu svið og hákarl og sögðu oj
Síðan var haldið heim í Freyjugötuna ásamt Katrínu, Sæma, Kristjáni, Ástu og Stebba og skáluðum við í ljúffengu freyðivíni
Síðan var haldið á barinn, þess má geta, fyrsta áramótaballið mitt á Mælifelli
Nýársdagur fór í rómantíska gönguferð okkar Ragnars í frostinu, góð byrjun á nýju ári.
Nýársveisla heima hjá ömmu og pakkar handa mér
Síðan var brunað suður þann annann janúar í heimsókn til tengdafjölskyldunnar, með tilheyrandi stoppi í nýja Staðaskála og meðfylgjandi sárum vonbrigðum yfir vegabreytingum og óhuggulegheitum.
Næst ætla ég að loka augunum
Semsagt góð jól og góð áramót
(Fyrir utan Staðarskála, sem eyðilagði allt sem hafði unnist upp um jólin)
En við erum búin að búa mánuð núna á Freyjugötunni og það hefur verið einn stórkostlegur mánuður.
Þrátt fyrir fílahjörð og teknóveislu á efrihæðinni
Ég er orðin húsmóðursleg og ætla að setja í nýju þvottavélina okkar á eftir.
Síðan ætla ég að baka.
Því ég er húsmóðir
Núna er ég komin aftur í Sundlaugina...
Sælan búin og við tekur skóli og vinna, skóli og vinna, skóli og vinna...
Yndislegt
Nú sló ég tólinu í vegginn
Blessogtakkfyrirmig
»